Björg og Kristján tóku sér sumarfrí eins og flestir nú í sumar. Þau voru í lok júlí í Munaðarnesi í sérhönnuðum bústað fyrir fólk í hjólastól. Það felst t.d. í því að rampur er upp á pallinn, ísskápur og bakaraofn er í hjólastólahæð og er öll eldhúsinnréttingin stillanleg upp og niður merð rafmagnsmótor.
Vinir Bjargar kíktu í heimsókn og var m.a. farið að skoða fossinn Glanna og Paradísarlaut. Aðgengi að þessum stöðum er til fyrirmyndar hvað varðar hjólastóla. Þar er nýbúið að leggja breiðan stíg og smíða útsýnispall yfir fossinn.
Í síðustu lyfjagjöf við krabbameininu fékk Björg ofnæmi fyrir lyfinu og varð að hætta lyfjagjöfinni í bili.
Núna er Björg byrjuð að fá aðstoð frá Heilsugæslunni á morgnanna. Kemur kona og aðstoðar Björgu við að komast á fætur og allt sem því fylgir.
Svo er loksins búið að setja upp lyftu til þess að björg komist í sturtu á sínu eigin heimili en það á eftir að tengja hana við rafmagn. Það gleymdist að setja þann hluta í útboðslýsinguna þegar verkið var boðið út ! Svo enn og aftur þarf Björg að bíða eftir því að geta komist í sturtu á heimili sínu.
Lífið heldur áfram sinn vanagang og núna í september fer Kristján í laxveiði. Á meðan Kristján verður í burtu munu dætur og vinir Bjargar aðstoða hana.
Björg og Kiddi sem eru bæði með MND sjúkdóminn voru í viðtali á Stöð 2 í kvöld, Íslandi í dag.
Viðtalið má sjá á Visir.is með því að smella hérna.
Í gær var haldið upp á alþjóðadag MND á Thorsplani í Hafnarfirði, þar var m.a. hjólastólarallý. Björg tók að sjálfsögðu þátt í því. Allir þátttakendur fengu svo verðlaunapening fyrr þátttökuna. Eva, dóttir Bjargar, tók líka þátt og lenti í fyrsta sæti í handknúnum flokki. Bæjarstjórar og fleiri frægir tóku svo þátt í svokölluðum stjörnuflokki.
Björg fer í lyfjagjöf nr. 2 á morgun, þriðjudag. Þetta er önnur lyfjagjöfin af þremur. Vonandi verður hún betri heldur en síðast þar sem Björg varð mjög slöpp af þeirri fyrstu.
Smelltu til að senda okkur ábendingar, fyrirspurn eða efni.
